Fræðsla
-
Kollagen
Kollagen er mikilvægt byggingarprótein sem finnst í húð, liðum, beinum og bandvef. Það styður við styrk og uppbyggingu þessara vefja og er vinsælt sem hluti af daglegri heilsurútínu.
Í NORDSEA notum við hágæða sjávar-kollagen frá Nordwell, sem notar einungis íslenskan viltan þorsk í kollagenið sitt.
-
D3-Vítamín
D-vítamín gegnir mikilvægu hlutverki í líkamanum og styður meðal annars við bein, vöðva og ónæmiskerfið. Það hjálpar einnig líkamanum að nýta kalk og stuðlar að eðlilegri starfsemi hans. Með því að bæta D‑vítamíni í daglega rútínu er hægt að styðja við eðlilega líkamsstarfsemi og vellíðan.
-
C-Vítamín
C‑vítamín styður kollagenmyndun og verndar frumur gegn oxunarálagi, sem hjálpar húðinni að halda ljóma og stuðlar að orku og endurnýjun. Skortur dregur úr kollagenframleiðslu og hefur áhrif á húð og bandvefi.
-
Stevía
Stevía er náttúrulegt sætuefni unnið úr laufum plöntunnar Stevia rebaudiana. Það gefur drykknum sætu án þess að bæta við sykri eða hitaeiningum og hefur ekki áhrif á blóðsykur.
Í NORDSEA notum við stevía til að gefa hreint og létt sætubragð, án óþarfa viðbótarefna.